Well, Hildur var að hvetja mig til þess að blogga
um helgina, og ég geri auðvitað ekkert nema að hlýða henni
blessaðri.
Föstudagurinn var ekkert sérstakur, en eftir dauðar vikur
rifum við okkur uppúr svaðinu á laugardaginn!
Ég,
Hildur og Sandra keyrðum nefnilega út á Akranes. Við vorum með
eitthvern leiðinlegan mix disk á repeat á leiðinni, en að öðru
leiti var þetta gott road trip. Við mættum til Ölla og Guðrúnar kl.
ca. hálf 8 og byrjuðum að gera okkur til. Ég og Hildur vorum svo
hógværar að við þorðum ekki að biðja um að fá að nota
ísskápinn...þannig að við kældum 7% bjórinn (já ég sagði
7%...bróðir hennar Hildar var á eitthverjum villigötum þarna í
ríkinu) í vaskinum inná baði. Eftir að hafa ákveðið okkur í hverju
við ætluðum og eftir að hafa blandað epla-vodka rugl í pepsi max
flöskur (mér leið eins og ég væri 15 ára), var ferðinni haldið á
Ungfrú Vesturland.
Þar
var Helena Rúnarsdóttir að keppa og var dead stunning að vanda.
Fyrst fengum við reyndar engin sæti og vanhæfur náungi að senda
okkur fram og til baka yfir salinn. Eitthvað random fólk var farið
að hjálpa okkur og á tímabili var verið að senda okkur til að reka
dómnefndina úr sætunum sínum.
En
eins og ég segi þá var Helena glæsileg og við æptum okkur hásar
milli þess sem við stálum sopum úr grunsamlegu pepsi max flöskunum
okkar. Guðrún Selma varð fljótt hress og kát og óð um allt andyri í
hléinu dansandi og djúsandi...skemmtandi gestum og
gangandi.
Og
viti menn.... HELENA VARÐ Í ÖÐRU SÆTI!
Sem þýðir það að VIÐ erum að fara í UNGFRÚ ÍSLAND!
Jeeeij.
Til
hamingju aftur Helena mín 
Eftir keppnina var haldið á dansiball. Þar var DJ Óli
Palli að sjá um tónlist, og hann kunni sko að velja hana. Á þessum
tímapunkti var liðið orðið dálítið skrautlegt...ég tók í vörina í
fyrsta skipti og var kynþokkafull með lummuna lekandi niður í
tennur. Sandra sá að ungur herramaður var ófríður og Hildur nældi
sér í karl að vanda. Það var auðvitað besta hugmynd í heimi að fara
með honum og vini hans sem var gervifrændi minn í eitthvað
heimapartý eftir ballið.
Þegar þangað kom var bara þrítugur gaur í baðslopp á
staðnum, en það stoppaði okkur ekki. Við tylltum okkur, Hildur sat
í baði og framkvæmdi svolítið sem ég vil kalla 'Double Trouble'
(nei þetta er ekki kynlífsskandall).
Karlinn sem Hildur fangaði var neyddur af Hildi til að
koma með að gista í stofunni hjá Ölla, en síðan neyddur af mér og
Söndru til þess að hypja sig heim. Hann sló mig.
Kelling.
Hildur sofnaði með hausinn á öxlinni á mér, kúrandi alveg
í hálsakoti. Það var voða sætt...en um leið ekkert alltof þægilegt

Sandra var svo hress að hún vakti okkur síðan kát kl.
10.... við héldum nú ekki, og fórum bara aftur að sofa, og Sandra
líka. Við stoppuðum nokkur létt stopp áður en við yfirgáfum plássið
og héldum síðan heim á leið. Stoppað var á leiðinni í Kentucky í
Mosó þar sem fólk fékk sér mat og skilaði mat.
Þetta var kósí og skemmtileg ferð og ég vil þakka
eftirfarandi:
- Stelpunum, sem gerðu þetta skemmtilegt og
eftirminnilegt
- Ölla, systur hans og Co. sem voru gestrisnari en allt og
bjuggu meira að segja um okkur og allt
Takk fyrir
það
- Helvítinu sem sló mig. Þú minntir mig á það hvers vegna
mér líkar ekki við hyski.
Takk
fyrir og Ösp ÚT.